Guffi lætur gamminn geysa!
One Guffi, shaken, not stirred!Guðfinnur Þorvaldsson
Úff, rúmar 3 vikur frá síðustu færslu! Þetta er skammarlegt. Nú ætla ég mér að bæta úr þessu hið snarasta!Tölum bara um helgina, er það ekki alltaf klassískt. Allavega var helgin fín framan af. Fimmtudagurinn var rosalegur, en eins og allir vita var þá krýndur Herra Ísland 2006. Ástæðan fyrir veru okkar þarna var auðvitað hann Biggi, en hann var meðal keppanda. Þrátt fyrir að hafa mætt á bíl til þess að standast freistingu barsins þetta kvöldið, þá varð freistingin skynseminni yfirsterkari og ég endaði á barnum. Það hefði ég reyndar betur látið ógert, því þegar ég fór yfir yfirlitið á kortinu mínu eftir helgina, þá kom í ljós að ég var rukkaður um 8500kr fyrir drykk sem átti að kosta 850kr! Þetta er allt mjög shaky þar sem ég er búinn að tala við gjaldkera Broadway og hún fann eina færslu upp á 8500 sem var kvittað fyrir. Málið er nefninlega það að ég kvittaði aldrei fyrir þetta! Barþjónninn lét mig ekkert kvitta þannig ég pældi ekkert meir í því. Ég er að vinna í þessu, ætla sko að fá þessa peninga aftur! Vegna mikilla fjárútláta í lánið mitt um síðustu mánaðamót átti ég nefninlega alls ekki mikið af seðlum, og þessi "mistök" urðu til þess að nú er kortið framyfir heimild og ég á ekki aur!.......Anyway.....eftir keppnina héldum ég, Vignir, Ösp og Biggi Matt niður í bæ í skamma stund, en skiptumst svo í tvennt. Við Vignir fórum á Thorvaldsen en Biggi og Ösp fóru heim. Þetta var samt ekki langt djamm því það lokaði allt kl. 1:00 og héldum við Vignir þá til Guddu systu þar sem við höfðum útvegað okkur gistingu. Þetta var samt fínt kvöld, mjög gaman.
Þar sem ég var að vinna á laugardeginum tók ég því bara rólega á föstudeginum og mætti til vinnu eldhress kl. 7:00 á laugardagsmorguninn! Var að vinna til ca. kl. 12:30 og kom mér þá heim að finna til draslið mitt í bústaðarferðina miklu! Flestir höfðu komið þarna deginum áður, og jafnvel á fimmtudeginum, en við Ösp vorum sein í því og lögðum af stað einhvern tímann eftir hádegið. Stoppuðum við á Selfossi til að versla, og vil ég meina að hápunkturinn þar hafi verið kasetturnar góðu! Skodinn býr ekki svo vel að vera með geislaspilara, og loftnetið er ekki upp á sitt besta, þannig það vantaði eitthvað að hlusta á. Því var reddað með ævafornum kasettum úr Hljóðhúsinu! Öss hvað þær voru slæmar. Smátt og smátt drógu þær allan lífsmátt úr manni, en þetta reddaðist þó á endanum...með því að slökkva á "græjunum". Aaanyway, ég er alveg að missa mig í útúrdúrum! Nú var haldið að Úthlíð, sem hvorugt okkar vissi hvar væri. Það endaði ekki betur en svo að fyrr en varði vorum við komin að Geysi! Vegvísun Valla greinilega ekki alveg að gera sig, eða kannski bara við úti á þekju, sem er kannski líklegra svar! Þetta hófst nú samt að lokum. Fólkið var hresst og það var súpið grimmt, sumir meira en aðrir. Það var þó um kvöldið sem ég lenti í leiðinda uppákomu. Eftir klósettferð var ég á leið aftur í pottinn, en rann á hálkublett og skall á hnakkann. Kveinkaði mér nú lítið þá, en síðar um kvöldið fóru þessar líka þvílíku höfuðkvalir að gera vart við sig, uppköst og læti. Það endaði á þann veg að Elli, Heiðar og Linda brunuðu með mig upp á sjúkrahús á Selfossi í snarhasti, og þaðan var ég fluttur með sjúkrabíl á blússandi ferð á borgarspítalann. Manni létti nú þegar allar myndir komu vel út þannig hægt var að útiloka blæðingu, og töldu læknarnir líklegustu skýringuna vera heilahristing. Mátti nú alls ekki við því! En morguninn eftir var mér hleypt heim á leið og ég er búinn að vera að jafna mig síðan, orðinn alveg góður af þessu.
Fór að vísu á vaktina í dag vegna verks í hægri síðu, eftir smá árekstra í körfu svolitlu fyrir þetta allt saman, og kom í ljós að það eru skaddaðar einhverjar vöðvafestingar í "latissimus dorsi", sem er víst bakbreiðarvöðvinn ef ég man lífeðlisfræðina rétt. Virðist vera að ganga gegnum eitthvað hrakfallaskeið núna, ætla að vona að því sé nú lokið.
En já, ég ætlaði bara að henda inn stuttri færslu og halda svo áfram að lesa, en það hefur nú eitthvað teygst úr þessu! Ætli ég endi þetta ekki bara á þessum spurningaleik af síðunni hans Valla. Endilega sem flestir að spila með, lífið er leikur! (Ætla að ítreka það rétt eins og Valli, að nota Word eða annað skriftarforrit til að gera þetta í, bara svona til öryggis. Paste-a því svo bara hingað)
Adios!
1. miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veikur?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?
Rauða Hættan!Guðfinnur Þorvaldsson
Það er orðið töluvert síðan ég hef látið á mér kræla hérna, það verður að segjast eins og er. En málið er bara að það hefur ekki verið mikið að segja frá undanfarið. Nú er þó eitthvað til tíðinda, og þá einna helst að nýr bíll er kominn á heimilið. Það mun vera arftaki gamla góða Skodans, sem mun brátt fara yfir móðuna miklu. Sá nýi er einnig Skoda, Skoda Felicia, ´98 árgerð, keyrður 80þús og í mjög góðu standi:
Ég vil reyndar fá koppa undir hann, því eins og sjá má eru felgurnar ekkert augnayndi. Hann er vel í það starf fallinn að leysa af þann gamla, en hann hefur þjónað okkur vel í þau 12 ár sem við höfum átt hann, og hefur margt skemmtilegt komið fyrir á honum! Það er ekki laust við það að maður eigi eftir að hálf sakna grey tímasprengjunnar!
En yfir í afdrif helgarinnar. Þeir sem hafa fylgst með Fimbulfamb síðunni (http://fimbulfamb.bloggar.is) vissu að til stóð að spila á fimmtudeginum, og það gerðum við, þar sem ég sigraði á eftirminnilegan hátt! Ætla samt ekkert nánar út í það, getið lesið allt um þetta á Fimbul síðunni.
Á föstudagskvöldinu kíkti Jenni í smástund og sýndi mér stuttmyndina sína, og ég verð að segja að mér fannst hún bara helvíti góð! Seinna um kvöldið fór ég svo til Aspar, þar sem ég, hún, pabbi hennar og Biggi Matt spiluðum Kana. Hafði einu sinni spilað með þeim áður, en þá spilaði Jónas eiginlega bara fyrir mig, þannig mér gekk mjög vel þá, þó ég hafi ekki botnað upp né niður í neinu sem fram fór! En þetta var fljótt að koma þarna á föstudeginum og ég er farinn að botna í þessu loksins. En Ösp, þú skuldar mér þá eitt Famb frá A-Ö, bannað að beila í miðju kafi! Eftir spilið kíktum við á Pakkhúsið. Hafði ekki komið þangað lengi lengi, og þetta var nú ekkert svo slæmt, hef alveg átt verri kvöld.
Á laugardeginum fyrir hádegi fór ég í bæinn með pápa og Gísla bróðir hans að leita arftaka Skodans, en þið vitið nú þegar niðurstöðuna úr þeirri leit. Annars var ég bara rólegur, gerðist beiler á ballinu vegna fjárskorts, en ég er að klára að borga upp lánið mitt, þannig ég er að spara. Ekki mikið eftir, klárast létt um næstu mánaðarmót. Þá ætla ég að halda upp á það með því að væta kverkarnar svolítið, endilega samgleðjist mér í ofurölvun!
Í gær gerði ég bara andskotann ekki neitt, nema sofna á ókristilegum tíma, var eitthvað andvaka. Þannig ég er hálf sjúskaður eitthvað núna, en ætla þó að þræla mér í laugina að synda á eftir, ætti þá að sofna snemma vonandi.
En jæja, ætla að fá mér eitthvað að snæða.
Catch you on the flipside!
(hver veit í hvaða mynd þetta quote er? Sá hinn sami er jafn mikill snillingur og myndin sjálf!)
MyndabloggGuðfinnur Þorvaldsson
Þar sem ég hef afskaplega lítið að segja þessa stundina ætla ég bara að tileinka þessa færslu nýjum myndum sem ég hef hef verið að leika mér með undanfarið. Endilega segið skoðun ykkar á þeim og kjósið í nýrri könnun hver ykkur finnst best. Þar sem þær eru sumar of stórar til að setja beint á bloggið hef ég bara linka í staðinn.The Mountain View
Tekin ofarlega í fjörunni bakvið vitann, þetta ku vera Baugstaðir.
Caught in Spikes
Girðingastaur umvafinn gaddavír, tekin rétt utan við Brekkholt.
Mountains
Fjöllin við flugvöllinn á leiðinni í bæinn, rétt já Bláfjallaafleggjaranum.
All Aboard
Stærsta seglskip veraldari. Var 2 daga í festum við Reykjavíkurhöfn í sumar og ég var akkúrat á svæðinu.
Don´t Forget
Blýantur og minnismiðar...lítið meira hægt að segja.
Sun Conour
Páfagaukur af tegundinni Sun Conour, eða Sólpáfi eins og hann kallast á íslensku. Tekin í Furðufuglum og Filgifiskum í bænum.
The Road Ahead
Tekin upp bláfjalla afleggjarann.
The Weapons Expert > Part 1 og Part 2
Hörður nokkur Frans mundar heimasmíðaðan boga sinn.
A Red Time of Day
Tekin niðri í fjöru vinstra megin við bryggjuna.
Þá er komið að ykkur, lesendur góðir. Kjósið myndina sem ykkur finnst flottust.
Until later...
Fambarar og aðrir eldhugar!Guðfinnur Þorvaldsson
Athugið, komin ný síða, tileinkuð Fimbulfambinu!http://fimbulfamb.bloggar.is
Tékkið á þessu!
Blogga svo hér í mjög náinni framtíð, þannig stay tuned!
Chao!
ÜberweiB!Guðfinnur Þorvaldsson
Sunnudagur. Helgin senn á enda, ég sit hérna heima, hlustandi á músík og "liggjandi" á meltunni eftir úrvals pizzu! Hvað hefur maður þá betra að gera en að blogga?Helgin var mjög fín hjá mér. Á föstudeginum brunaði ég í bæinn á Oktoberfest sem haldið var hátíðlegt í humongus tjaldi á móts við Háskólann. Væntingarnar voru miklar eftir mikið fjör í fyrra, í ár var það engin undantekning. Var þarna með Guðjóni Má og fleirum og skemmti mér vel bara. Enduðum niðri í bæ eftir festið, svo sem ekki frá miklu að segja, bara kíkt inn á staði og sopið svolítið. Gisti svo hjá Guðjóni um nóttina.
Ég vaknaði svo bara hress og sprækur kl. tæplega 12:00, á það til að vakna full "snemma" eftir að hafa drukkið, þó ég hafi nú alveg náð um 8 tímum. Anyways, við tókum svolítinn rúnt um daginn og ég verslaði mér 2 eðaldiska: "Joe Satriani - Surfing with the Alien", sem er best líst sem instrumental rock n' roll, eðal stuff! Svo "Decapitated - Organic Hallucinosis", sem er pólskur dauði, og auðvitað eðalstuff líka. Var svo þarna í mat um kvöldið og hélt heim á leið um kvöldið.
Í dag er ég lítið búinn að gera af viti. Valli kíkti við fyrr í dag að fá Photoshop, ásamt smá basic kennslu í því. Veit nú ekki alveg hversu gagnlegur ég var í þeim efnum, fórum yfir þetta á óttalegu hundavaði. En að öðru leiti hef ég afskaplega litlu frá að segja. Held það sé bara mál til komið að vinda sér yfir í nýjan Guffa Dagsins.

Eins og sjá má þá er Guffi Dagsins í dag sjálfur ég, undirritaður, og sést þarna í góðum gír á Bryggjuhátíðinni síðasta sumar. Veit svo sem ekki hvað skal segja meir, þið flest þekkið mig jafn vel, og ef ekki betur, en ég sjálfur, þannig ég hef ekkert fleiri orð um mig sjálfan!
Jæja, sagði kallinn, og sagði svo ekki fleira þann daginn. Ég ætla að fylgja hans fordæmi og stoppa núna. Minni á nýja skoðanakönnun, hún ætti að vera staðsett rétt núna eftir breytingar á síðunni sem ég gerði hér um daginn.
Þangað til næst,
take care now, bye bye then!
Fimmtán Frækin Ævintýr!Guðfinnur Þorvaldsson
Þessi færsla verður með öðru sniði en þið eruð vön, en ég ákvað að fylgja eftir hugmynd Valla um að koma með nokkuð atvik af "skemmtilegum" uppákomum hjá mér. Þannig hér koma 15 stykki ykkur til ómældrar ánægju.Hver man ekki eftir þegar mér tókst að gleyma bílnum á bílaplani F.Su. og fékk far hjá Geira heim? Það vildi þannig til að ég var búinn í mínum síðasta tíma og var á leið út, þegar ég mætti Geira. Hann spurði hvort ég vildi far heim, og ég jánkaði því án þess að hugsa mig frekar um. Þegar við vorum að renna í hlaðið heima, fattaði ég hefði fengið bílinn í skólann og hann stæði þar enn! Grey Geiri brunaði með mig aftur á Selfoss og ég hélt heim á leið.
Meiri gleymska, þegar ég gleymdi Fimbulfambinu heima. Minntist nú á þetta í síðasta bloggi þannig ég ætla ekki að hafa mörg orð um þetta. Í stuttu máli sagt þá ætluðum við að spila Famb í bænum, en ég gleymdi spilinu á Stokkseyrinni, og neyddist til að fara aftur á Stokkseyri að sækja það.
Ein saga úr barnæsku, sem ég held þið hafið nú öll heyrt. En það var þannig að við Gaui vorum á ferli hér á Stokkseyri, og vorum að væflast eitthvað í kringum afgamalt hús sem er þarna rétt hjá húsinu hans Gaua. Hann fékk þá frábæru hugmynd að við skyldum brjóta rúðu í því, og með "við" þá meinti hann auðvitað ég.
- Hey, brjóttu rúðuna.
- Nei, það á einhver heima hérna!
- Nei, það á enginn heima hérna, svona brjóttu rúðuna bara.
Ég tók þessu auðvitað sem heilögum sannleik, greip heljarinnar hnullung og kastaði að rúðunni. Eftir misheppnaða fyrstu tilraun náði ég að brjóta annað glerið í þessari tvöföldu rúðu. Við héldum svo bara okkar leið og pældum ekkert í þessu frekar. Í ljós kom svo að þetta hús var í eigu gamallar löggu á eftirlaunum sem var vistmaður á Kumbaravogi ef ég man rétt. Mér stóð ekki á sama við þessu tíðindi og fór að hágrenja, haldandi það að nú væri þetta búið, ég væri á leið í fangelsi! Svo slæmt var það að vísu ekki. Refsingin var að ég mátti ekki leika við Gaua í sólarhring!
Önnur saga frá bersnkuárunum sem viðkemur Gaua. Við vorum á ferð niðri í fjöru í miklum kulda, svo miklum að ísinn hafði lagt. Ákveðið var að fara út á ísinn, sem gekk vel til að byrja með, þar til ég ákvað að fara aðra leið en Gaui. Það fór ekki betur en svo að ég pompaði gegnum ísinn. Svo til að bæta gráu ofan á svart var ég íklæddur dúnúlpu sem drakk í sig gífurlegt magn af sjó sem þyngdi mig svo um munaði! Eftir mikla baráttu náði ég loks að koma mér upp á ísinn aftur, alveg gegndrepa. Þegar heim var komið sagðist ég bara hafa skrikað til og dottið út í sjóinn, vitandi af því að mamma og pabbi hefði verið allt annað en sátt við það að ég væri eitthvað að ana út á sjóinn.
Næsta er mun nýlegra, frá þarsíðasta sumri til að vera nákvæmur, mitt síðasta sumar í bæjarvinnunni. Við dugnaðarforkarnir ég, Ösp, Biggi (Matt), Heimir, Hugrún og Tinna vorum að rúnta Holtshringinn einn daginn. Ég keyrði Skodann og Biggi Avensisinn sinn, man ekki alveg farþegaskipan í bílunum, en ég man skýrt og greinilega að ég varð bensínlaus þarna á miðjum hringnum! Biggi sótti okkur og við tveir fórum að redda þessu meðan hinir fóru að sópa. Eftir að hafa "fengið lánaða" 5L af bensíni frá Árborg og hellt á hann, þá fór hann ekki í gang. Ég taldi mig hafa endanlega gengið frá grey Skodanum, en eftir að pápi hafði mætt á svæðið og fyllt meira á hann var þetta í góðu og Bláa Eldingin lék sér að veginum á ný! Þetta var samt afar tímafrekt alltsaman, og ég get sagt með nokkurri vissu að ég hef aldrei gert jafn lítið á einum vinnudegi, og mun aldrei gera, því við Biggi gerðum akkúrat ekki neitt!
Önnur hreppara saga, gerðist þetta sama sumar. Við vorum að týna rusl á hestahringnum, með mig fremstan í flokki á traktornum með krakkana á pallinum. Ég fylgdist vel með öllu og benti þeim á rusl sem þeim yfirsást. Eitt skiptið var ég þó of mikið að einbeita mér að því að benda þeim á kókflösku og skipa þeim að taka hana upp, að ég fylgdist ekki nógu vel með akstrinum. Þegar ég leit aftur framfyrir mig var ég kominn hálfur útaf veginum! Hefði ég reynt að koma mér beint upp á veginn aftur hefði ég líklegast velt, þannig ég beygði bara út af og rétti hann af, kom mér síðan bara aftur upp á veginn. Hef sjaldan verið jafn hræddur held ég, með pallin fullan af krökkum sem hefði getað stórslasast og jafnvel steindrepist hefði ég velt! En þetta fór allt vel, og það er nú hægt að hlæja að þessu eftir á.
Enn ein hreppara saga frá þessu viðburðaríka sumri! Við Biggi vorum að slá varnargarðinn með orfum þegar verkstjórinn kom eitthvað að ræða við okkur. Við tiltum okkur niður í hálfgerða laut þarna á meðan hún talaði við okkur, og ákváðum svo að sitja ofurlítið lengur eftir að hún fór. Við steinsofnuðum svo þarna í alveg 35-40 mín þegar ég vaknaði við að einhver gamall skarfur var að tala við mig, og var bara hæst ánægður með að við værum aðeins að hvíla okkur. Hef samt sjaldan sofið jafn vel, ótrúlega þægilegt að blunda þarna í góða veðrinu, heyra í fuglunum og sjónum! Sei sei, good times.
Á fyrstu Bryggjuhátíðinni tókst mér að festa bílinn okkar hjá Löngudæl(u). Við Valli og einhverjir vorum að fylgjast með kappróðrinum, sem er svo sem ekki frásögu færandi, nema hvað þegar ég ætlaði að snúa bílnum við, bakkaði ég full langt og bíllinn fór á kviðinn og sat fastur. Auðvitað er búið að blása þessa sögu upp eins og margar aðrar og hafa eflaust einhverjir heyrt hana sem að ég hafði keyrt út í dælu, en svo var ekki. Einhver karl, man ekki hver, dróg mig upp og ég hélt mína leið.
Mmm, ostborgari á American Style, þeir gerast ekki betri en það borgararnir. Ég ruglaðist þó einu sinni frekar illa við pöntunina. Ég sagði skýrt og skilmerkilega, "ég ætla að fá ostborgara mínus ost!". Það hefur verið mikið hlegið að þessu og alltaf minnst á þetta í hvert skipti sem við étum. En það er fullkomlega eðlileg útskýring að baki þessu, sem enginn vill samþykkja. Málið er að ég ætlaði að fá mínus lauk, en ekki ost. Hvað er svo laukur á ensku? Onion. Onion byrjar á "O", rétt eins og ostur, þannig þetta rann allt saman í hausnum á mér og olli samslætti þannig ég sagði "ost í staðinn fyrir "lauk". Þetta meikar allt sense!
Annað hamborgaratengt atvik, sem átti sér stað á KFC að þessu sinni. Við strákarnir vorum að éta úrvalsmáltíð, ég með minn Zinger að njóta hans til fullnustu! Valli hafði þó eitthvað út á það að segja hvernig ég hélt á borgaranum mínum, og sagði að þetta færi allt út um allt hjá mér. Mér gat ekki verið meira sama og sagði orðrétt: "Svo lengi sem þetta fer allt ofan í mig, þá er ég sáttur!". Ég hafði ekki fyrr sleppt orðinu en að brauðið ofan á borgaranum hrundi á gólfið með tilheyrandi subbugangi. Ég hélt strákarnir ætluðu að deyja þarna úr hlátri! Skiljanlega svosem, þetta er með því lúðalegra sem ég hef lent í. Ég ýtti þessu bara undir borð með löppunum og lét lítið fyrir þessu fara. Það er samt búið að blása þetta upp líka eins og annað, en ég vil hafa það á hreinu að ég var EKKI að stappa og traðka í þessu eins og sagt er! End of story.
Á þriðja og síðasta "giggi" Wendigo fyrir dvalann langa á sér stað næsta atvik. Við tókum cover úr gömlum tölvuleik, Megaman 2, og ég kynnti lagið sem "óvenjulegt cover sem einhverjir gætu kannski kannast við". Eftir lagið, sem var okkar síðasta, var ég byrjaður að tína saman draslið mitt, en ákvað síðan að spyrja hvort einhver hefði kannast við þetta. Ég sneri mér við og sagði í micinn "Kannaðist einhver við þetta?", nema hvað ég var allt of nálægt micnum og það heyrðist alveg gífurlega hátt í mér! Fólk hrökk við, og svo heyrðist eitt og eitt "nei" innan úr sal. Vil svo taka það fram að ég ÖSKRAÐI EKKI í micinn eins og Gylfasynir vilja meina!
Eitt sinn er ég var við stangveiði í Selslæknum góða og var að krækja spúninum í eitt gatið, augað, sem girnið er þrætt gegnum, þá spennti ég stöngina of mikið og tókst að brjóta fremri hlutann af henni! Var frekar svekktur yfir þessu þar sem ég hafði bara nýlega keypt mér þessa stöng. En ég fór þó ekki tómhentur heim því ég hafði fengið smá afla.
Þessi næsta saga er nýleg, og ég minntist á þetta líka í bloggi hérna. En eftir eitt djammið á Selfossi komst ég að því að síminn minn hafði orðið einhverstaðar eftir um kvöldið því ég var ekki með hann þegar heim var komið. Ég hringdi í Didda því ég hélt að síminn væri í bílnum hans. Hann ætlaði að gá að því daginn eftir. Þegar ég vaknaði deginum eftir hringdi ég í hann, að ég hélt, en einhver stelpa svaraði. Ég taldi þetta vera Birnu, kærustu hans, og spurði um Didda. Hún kannaðist ekki við neitt, og ég var ekki sáttur, haldandi það að hún væri eitthvað að rugla í mér bara. Var næstum farinn að hálf-rífast við hana þegar ég komst að því að ég hafði bara hringt í vitlaust númer, og þessi stelpa var stödd í Litháen.
Ein frægasta drykkjusagan af mér er eitt örlagaríkt kvöld heima hjá Guddu systu. Ég, hún, Vignir og Guðjón Már vorum að spila Fimbulfamb, og var ölkelda með í spilinu. Ég var full duglegur að súpa það kvöld og drakk allt of mikið á allt of stuttum tíma, og allt sitjandi. Eftir spilið þegar halda átti niður í bæ fór svo allt í klessu. Þegar ég stóð upp fór ég að verða hálf ringlaður, og þegar ég ætlaði í lyftuna bara slökknaði á mér, ég steinlá kylliflatur! Þetta var víst hálf creepy, ég datt bara niður og var með galopin augun. En þetta var bara í örfáar sekúndur því ég rankaði við mér aftur og fór að "sofa". Skemmtilegt þetta!
Ætla að enda þetta á einu tiltölulega nýlegu. Þetta var á fyrstu önninni í líffræðinni þegar ég var á leið heim á hjólinu mínu. Ég var svo mikið að flýta mér, man ekki af hverju, að þegar ég hjólaði niður gangbrautarkant og út á götu, þá flaug ég á hausinn á miðja götuna. Held ég hafi aldrei verið jafn snöggur að standa upp og þá, hefur tekið mig svona svona max 5 sekúndur að standa upp og byrja að hjóla aftur! Sem betur fer var afar lítil umferð á þessum tíma og enginn á ferli kringum skólann, þannig það hafa ekki verið mörg vitni.
En þá er þetta bara komið, örugglega sú allengsta færsla sem ég hef skrifað! Í næstu færslu fáið þið svo nýjan Guffa Dagsins o.fl. skemmtilegheit, en ég set punktinn við þetta núna.
Með kveðju, ykkar ástkæri Guffi!

We have a winner!Guðfinnur Þorvaldsson
Hér er ég staddur, og skrifa frá borg óttans, nánar tiltekið Breiðholtinu hjá Guddu. Í gær var tekið Fimbulfamb hér á bæ en það er ekki hægt að segja að það hafi gengið vandræðalaust, síður en svo.Þegar ég var kominn í bæinn, búinn að láta fara vel um mig í sófanum og alles, þá fattaði ég að ég hafði gleymt svolitlu heima, svolitlu mjög mikilvægu...spilinu sjálfu! Ég átti varla til aukatekið orð yfir þessu, enn eitt gott dæmið um hvað ég get oft verið freðinn. Ætli það besta sé ekki þegar ég gleymdi bílnum á bílaplani F.Su og fékk far með Geira heim...en það er nú önnur saga, sem ég ætla ekki nánar út í í þessari færslu. En allavega, ég auðvitað neyddist til að keyra aftur niður á Stokkseyrina, sækja spilið og bruna svo aftur í bæinn. Lagði af stað úr bænum um kl: 20:00, og við ætluðum að byrja að spila kl: 22:00. Þannig þetta slapp alveg, en djöfull var pirrandi að þurfa að keyra þetta, sérstaklega þar sem við Gudda ætluðum að fá okkur snæðing á KFC fyrir spilið. Sniff sniff, þar fór fullkomlega góður Zinger fyrir lítið.
En nóg af þessu væli, við spiluðum og það er fyrir mestu. Tveir nýliðar voru í hópnum að þessu sinni, þau Íris og Daníel, Idolfélagar Guddu. Ég held þeim haf bara þótt þetta hin besta skemmtun, en ekki hvað? Síðan voru að sjálfsögðu ég og Gudda með, og Guðjón Már. Nú þegar Vignir var úr vegi mínum vann ég spilið með töluverðum yfirburðu, þó ég segi sjálfur frá, og var þetta fyrsti sigur minn í töluverðan tíma. Damn it feels good! Gudda endaði í því öðru, en Guðjón í þriðja, og er þetta slakasti árangur hans til þessa, þar sem hann hefur verið nánast ósigrandi fram til þessa. Þannig þetta eru skilaboð til ykkar Fambara, watch out, Guffi is back in action!
Sökum þreytu fór ég að sofa frekar fljótlega eftir spilið og er því vaknaður núna fyrir allar aldir, var vaknaður fyrir hádegi! Það er svo sem ágætt, neita því ekki. Í dag á svo að vera Winterreich æfing. Fyrir þá sem ekki vita þá er það hljómsveit sem Helgi er í, og fékk hann mig til að spila með þeim á tónleikum þann 5. október, skemmtilegra að vera með 2 gítarleikara á tónleikum, mun þéttara. Svo í kvöld hitti ég Steina og co., en ég er að fara með þeim á tónleikana á Broadway í kvöld með Magna og Dilönu. Þó ég hafi aldrei fílað Á Móti Sól, þá verður gaman að sjá þetta þar sem maður fylgdist svo grannt með Rockstar þáttunum. Stefni kannski niður í bæ eftir þessi herlegheit, en það er samt alls óvíst, fer bara eftir stemningunni.
Sunnudagurinn mun líklegast fara í meiri æfingar með Winter, þannig ég mun ekki snúa aftur á Eyrina góðu fyrr en líklega annað kvöld, þar sem æfingarnar eru hérna í Rvk.
En jæja, maginn á mér er farinn að öskra af svengd, ætla að sjá hvort ég finni mér ekki eitthvað í gogginn.
Catch you on the flipside!
ps. Eins og þið hafið kannski tekið eftir þá er ég búinn að redda síðunni þannig hún sést vel bæði í Mozilla og Explorer, nú á allt að vera á réttum stað.
Helgin og fleira tilGuðfinnur Þorvaldsson
Þögn í salinn!Jæja, þetta er allt annað.
Er ekki tímabært að segja frá afdrifum helgarinnar og dögunum kringum hana? Allavega á fimmtudeginum eftir vinnu kíktum við Bjarki smástund í körfu, en um kvöldið var svo æfing. Trommurnar voru teknar í gegn á fyrsta laginu sem ég samdi fyrir Wendigo og þetta er eiginlega bara allt annað lag núna, miklu flottara! Bara orðið fínasta lag miðað við að þetta hafi verið það fyrsta sem ég samdi á gítarinn, fyrir bráðum 3 árum. Eftir æfinguna skutlaði ég Helga heim, en á leiðinni urðum við bensínlausir rétt áður en við komum út af Holts afleggjaranum inn á Selfossveginn. Í annað sinn sem ég verð bensínlaus á mínum ökuferli, og í bæði skipti var það á Bláu Eldingunni, betur þekkt sem Tímasprengjan. Búinn að komast að því núna að bensínmælirinn er ekki beinlínis nákvæmur. En þetta reddaðist þar sem Helgi hringdi í Vigni og hann skutlaðist með okkur á Esso þar sem við fylltum brúsa. En þetta tafði okkur samt töluvert, bölvað vesen!
Á föstudeginum var efnt til Fimbulfambs, og var múgur og margmenni viðstatt. Spilendur voru ég, Bjarki Vignir, Jenni og Alexandra, Steini og Herdís og Nonni. Ég held að spilið hafi aldrei verið jafn lengi að fara af stað! Eftir rúmlega klukkutíma spilun vorum við bara búin að afgreiða 3 orð, þetta var rosalegt alveg. Ég vil kenna Jenna og Steina um það, haha, vitleysingar! Þetta var samt mjög gaman að venju. Nú eru kannski einhverjir sem hafa ekki grænan um hvað ég er að tala, en þau sem hafa spilað fatta þetta auðvitað. Steini, Herdís og Nonni beiluðu svo á þessu seinna um kvöldið, en við restin kláruðum spilið. Mér leiðist að segja það, en Vignir vann með fádæma yfirburðum. Það þarf að fara að stöðva drenginn, hann er búinn að vinna allt of oft undanfarið! Ég endaði þó í öðru sæti, en það er ekki nógu gott! Eftir spilið fór ég svo bara að sofa.
Stefnan var sett á Akranes á laugardeginum. Ég, Diddi og Birna, kærasta hans, drifum okkur og fórum til Valla og spúsu hans. Vorum þarna drekkandi bjór, spilandi á gítar og fleira og fleira. Um kvöldið fórum við Valli á Sálarball, Diddi og frú voru buguð og gerðust beilerar. Það var alveg ágætt, þó maður hafi nú ekki þekkt sálu þarna. Gerðist svo sem ekkert markvert þarna sem vert er að segja frá, en við vorum svo komnir heim um kl. 4:00 og höfðum þá verið að frá því um kl: 14:00, sem gera 14 klst. Það er ágætt alveg. Ég ætlaði mér heldur betur að taka myndir þarna, en sú varð ekki raunin þar sem ég gleymdi batteríinu í hleðslutækinu hérna heima, en tók vélina með. Algjör sauðsgangur.
Þó ég væri ekki alveg að nenna því, þá skellti ég mér í körfu með Bjarka úti í húsi fljótlega eftir að ég kom á Eyrina aftur. Ansi hressandi, var í góðum gír, hitti eins og andskotinn í fyrri leiknum og vann góðan sigur. Þurfti þó að láta í minni pokann í þeim seinni, þannig við skildum jafnir. Um kvöldið kíkti Helgi við og við sátum og sömdum, erum komnir langleiðina með nýtt lag! Ekki amalegt, líst vel á þessa þróun. Svo var hann að reyna að fá mig til að spila með Winterreich, blackmetal bandi sem hann er í, á einhverjum metaltónleikum þann 5. október í Hafnafirði. Ég held ég slái bara til, gaman að spila og Helgi hafði nú hlaupið tvisvar í skarðið hjá okkur hérna í "gamla daga". Þannig þetta verður vonandi ágætt.
Í gær leið mér svo virkilega eins og kóngi þegar ég sat í og fékk að taka aðeins í "nýja" ´87 Cruiserinn hans Bjarki. Ansi vígaleg maskína, ekki margt sem stoppar hann. Bjarki var alveg í sæluvímu, skiljanlega.
En þá er það nýr Guffi!

Í dag er það original Guffinn, beint úr smiðju Walt Disney heitins. Hver kannast ekki við Guffa, hjálparhellu Mikka, sem er þó oft meira til trafala en aðstoðar. Hans helsta einkenni er aulalegur hláturinn sem hvert mannsbarn ætti að þekkja strax við 2-3 ára aldur. Fyrir þá sem ekki vita þá er hann hundur, en hefur greinilega masterað það að ganga á tveimur fótum. Þetta er gamli góði, upphafið af þessu öllu.
En þá ætla ég að segja þetta gott í dag, orðin vel löng færsla held ég, ætla nú ekki að ofgera ykkur, kæru lesendur! Kommentið endilega og kjósið í nýrri skoðanakönnun. Og ef þið sjáið hana ekki þá hafa einhverjir lent í því að hún sé einhverstaðar neðarlega til vinstri, veit ekki af hverju, en svona er þetta bara.
Bye bye then!
Harkan sexGuðfinnur Þorvaldsson
Öll höfum við nú heyrt heilræðið sem hljóðar svo, "Ekki byrja á einhverju sem þú getur ekki klárað". Merkilegt hvernig þetta snýst við þegar á að blogga, maður situr frosinn við tölvuskjáinn og horfir á bendilinn blikka, sem bíður ólmur eftir að maður hamri á lyklaborðið. En ekkert gerist. Þannig þá verður þetta þannig að maður getur ekki byrjað þetta, og getur þar af leiðandi ekki lokið þessu heldur. Speki dagsins! En þetta er samt hálfgerð þversögn því það að geta ekki byrjað varð til þess að ég er hérna kominn með nokkrar línur sem inngang að bloggi! Merkilegt nokk, spurning hversu oft ég nái að bjarga mér fyrir horn hérna, farið að þróast út í vitleysu bara!En já, hmm, hvar stoppaði ég síðast...á laugardeginum já. Mongólíti já!! Laugardagskvöldið fór ekki í ball hjá mér eins og mörgum því ég þurfti að skutla pabba á rútu í bæinn eins og kom fram síðast. Missti svo víst ekki af miklu, þar sem maður hefur heyrt misjafna hluti um þetta ball. Annars fór rútan kl. 4:45, þannig ég ákvað að sofa ekkert bara, enda ekki þreyttur, og vakti fram að brottfarartíma. Skutlaði honum og var svo kominn heim um 6 leitið þar sem draumalandið tók við. Svaf veeel út á sunnudeginum og var svo alveg glaðvakandi frameftir öllu, held ég hafi fengið 1.5 - 2 tíma svefn þá nóttina. Var samt alveg furðu hress í vinnu þótt ótrúlegt sé.
Þriðjudagurinn eftir vinnu fór eiginlega allur í að taka upp coverið mitt á "Sweet Child of Mine" með Guns 'N Roses. Lenti í miklum tæknilegum örðuleikum og varð fyrir truflunum, þannig þetta tók drjúgan tíma. En heppnaðist þó ágætlega á endanum. Endilega tékkið:
>>> Sweet Child of Mine <<<
Sótti backing track á netinu sem innihélt trommurnar og bassa, auk clean gítars sem heyrist varla, er eitthvað þarna að læðast í bakgrunn bara. En rafmagnsgítarinn er ég. Sólóið er misheppnað á köflum, mikið til bara eitthvað sem ég spann upp á staðnum, og það er svona alveg á mörkunum hvort ég ráði við þennan hraða, svona aðeins til að afsaka sjálfan sig!
Í dag skrapp ég í körfu með Örvari í svona 1 - 1.5 tíma og var alls ekki sáttur með mína hittni að þessu sinni, en þetta var hressandi. Fórum svo í sund og ég synti ferðirnar mínar, þannig ég er góður núna bara, búinn að taka vel á því í dag á minn mælikvarða, þó þetta sé kannski ekki mikið fyrir aðra.
Nú er hins vegar komið að því sem þið hafið öll beðið eftir, nýr Guffi Dagsins!

Nú eruð þið kannski kanínu krossbit! Guffi Dagsins í dag er ekki lengur dæmigerður prímati heldur þessi íðilfagri naggrís, sem ber að sjálfsögðu nafnið Guffi. Tignarlegur er hann, því verður ekki neitað. Klassísk litasamsetning, og fastur á 8. áratugnum hvað varðar hárgreiðslu. Krjúpið fyrir leiðtoga vor, Guffa Naggrís, konungi dýranna!
Eins og venjan er þá er komin ný könnun þar sem nýjum Guffa er gefin einkunn, þið ættuð að vera farin að þekkja þetta. Vonast eftir meiri þáttöku en síðast, aðeins 8 atkvæði greidd. Ætli það séu kannski bara alltaf sömu 8 manneskjurnar sem skoða síðuna? Svo sem ekkert ólíklegt. En allavega, ef þið eruð að lesa, endilega commenta og kjósa!
Over and out!
Í dag skrapp ég í körfu með Örvari í svona 1 - 1.5 tíma og var alls ekki sáttur með mína hittni að þessu sinni, en þetta var hressandi. Fórum svo í sund og ég synti ferðirnar mínar, þannig ég er góður núna bara, búinn að taka vel á því í dag á minn mælikvarða, þó þetta sé kannski ekki mikið fyrir aðra.
Nú er hins vegar komið að því sem þið hafið öll beðið eftir, nýr Guffi Dagsins!

Nú eruð þið kannski kanínu krossbit! Guffi Dagsins í dag er ekki lengur dæmigerður prímati heldur þessi íðilfagri naggrís, sem ber að sjálfsögðu nafnið Guffi. Tignarlegur er hann, því verður ekki neitað. Klassísk litasamsetning, og fastur á 8. áratugnum hvað varðar hárgreiðslu. Krjúpið fyrir leiðtoga vor, Guffa Naggrís, konungi dýranna!
Eins og venjan er þá er komin ný könnun þar sem nýjum Guffa er gefin einkunn, þið ættuð að vera farin að þekkja þetta. Vonast eftir meiri þáttöku en síðast, aðeins 8 atkvæði greidd. Ætli það séu kannski bara alltaf sömu 8 manneskjurnar sem skoða síðuna? Svo sem ekkert ólíklegt. En allavega, ef þið eruð að lesa, endilega commenta og kjósa!
Over and out!
Konungsríkið endurheimt!Guðfinnur Þorvaldsson
Úff, erum við að tala um gott veður í dag? Það held ég, búinn að vera að bíða eftir svona veðri núna í dágóðan tíma! Þetta þýðir aðeins eitt, og það er golf. Við Bjarki og kannski Diddi erum á leið í golf rétt á eftir, orðið rosalega langt síðan maður hefur tekið hring.En þá að liðnum atburðum. Miðvikudagurinn var afskaplega afdrifalítill, en þann daginn var ég aumingi og var heima frá vinnu. Var hnerrandi eins og móðurserðir og bölvað vesen, en maður má ekki vinna í því ástandi í þeirri deild sem ég er í vegna ofur hreinlætisráðstafana. Ég gerði afar fátt, og bara eiginlega ekki neitt þann daginn, nema hangsa í tölvunni, glamra á gítarinn og þar fram eftir götunum. Horfði svo auðvitað á Rockstar um kvöldið/nóttina, þótt margir töldu Dilönu með góðar líkur á sigri, þá svona grunaði mig að innst inni vildu þessir náungar ekki hafa kvenmann sem frontinn hjá þeim. En það eru nú bara mínar hugrenningar.
Á fimmtudeginum eftir vinnu var það sundið, en þegar heim var komið tóku við flutningar. Þar sem Gudda hefur verið hérna tímabundið meðan íbúðin sem hún var að fá losnaði, þá var hún í mínu fyrrverandi herbergi. En nú þar sem hún er komin í íbúðina, þá var kominn tími á að flytja mig aftur hingað inn. Fínt að vera kominn í eigið herbergi aftur, en þegar ég kom úr bænum þurfti ég að vera með tölvuna mína og borðið inni í stofu bara, bölvað vesen. Nú er allt komið í fastar skorður, sem er gott. Valdatími Snorra í ríki mínu var ekki langur, I'm back in absolute power!
Föstudagurinn var annað mál. Eftir vinnu fór ég í sund og synti, en svo tókum við Bjarki ferð upp á drive-range-ið á Selfossi og dúndruðum nokkrum kúlum. Það er svo sem ekki frásögu færandi, nema hvað bjarki setti niður kúlu við pútt-æfingaflötina og ætlaði að bomba með drivernum. Þá kallaði einhver vallarstarfsmaður, algjör skarfur með búbbalega rödd, að honum:
"NEI!! ÞÚ TEKUR EKKI ÞARNA!! ANNARS VERÐURU DREPINN!!"
"Af hverjum?" svaraði Bjarki sultuslakur á móti.
"MÉR!!" Öskraði kallinn þá á móti.
Ég átti mjög erfitt með að springa ekki út hlátri, þetta var bara snilld!
Eftir nokkur skot og morðhótun fórum við út á Holt að spila svolítið. Þar gerðist svolítið sem hefur ekki gerst áður. Bjarki byrjaði að tromma eitthvað í fíflagangi bara, og ég byrjaði að spila með bara af fingrum fram, og við sömdum lag á staðnum! Finnst það merkilegt, venjulega tekur það okkur langan tíma að semja lag, en þetta hefur tekið svona 3 mín. Kannski ekki besta lag í heimi, en virkilega hresst og fyrst og fremst geðveikt stuð að spila það. Fórum fljótlega heim og gláptum aðeins á Simpsons, fór svo bara að sofa frekar snemma, var eitthvað svo þreyttur.
Það hefur ekki margt gerst í dag, enda ekki nema svona klukkutími síðan ég vaknaði. En eins og ég minntist á í upphafi færslunnar, þá verður farið í golf á eftir. Svo verður kveðjugrill á eftir, en pabbi er víst að fara aftur út til Rúmeníu í nótt.
En jæja, ég verð að binda snöggan endi á þetta, því Bjarki er á leiðinni að sækja mig, golf it is! Minni enn og aftur á skoðanakönnun!
Good bye.

